Leita í fréttum mbl.is

Komma-kratarnir í ríkisstjórn

Blessunarlega sluppu þeir sem horfðu á formannaþáttinn á RÚV í gærkvöld við enn eina hringferðina um steingrimur_og_johanna_styrkjamálið sem tröllriðið hefur umfjöllun fjölmiðla síðasta hálfa mánuðinn. Styrkirnir voru löglegir á þeim tíma sem þeir voru veittir, punktur. Því hafa menn reynt að hengja siðferðisstimpil á umræðuna til að halda henni gangandi. Þegar svo kemur í ljós að háheilagir samfylkingarmenn þáðu styrki til jafns við aðra og hafa jafnvel þrætt fyrir að hafa þegið þá, þá dettur botninn úr umræðunni. Jóhanna Vigdís og hliðarhjól hennar, Sigmar hafa ekki lengur áhuga á styrkjum til stjórnmálaflokka. Gott og vel. Áhugaverðari máli eru enn óútrædd.

Mál sem varða framtíð þessarar þjóðar.

Í þættinum sáum við í hvernig komma-kratarnir hanga enn fastir í þeirri hugmyndafræði sem þeir ólust upp í. Ég segi ekki á fyrri hluta síðustu aldar en sem næst því. Kratinn, sem aldrei hefur skilið hugtakið "að sníða sér stakk eftir vexti" hefur engin önnur ráð til að halda eyðslufylliríinu áfram en að gangast stórríkinu´ESB á hönd. Gamli sáttmáli er aftur kominn á dagskrá. Þetta er lausn lausnanna -entlösung segja sumir. Komminn býður upp á heimilisiðnað á vegum hins opinbera. Átti reyndar í vandræðum með að gera grein fyrir hvað fjöldi ársverka merkti í mannaráðningum, en það skiptir ekki meginmáli því störfin verða hjá hinu opinbera - og það er fyrir mestu. Öll spil á einni hendi.

Eitt voru þau, krati og kommi, algerlega sammála um og það var að aflétta ekki leynd af upplýsingum um stöðu gömlu bankanna. Þessi skýrsla, sem virðist kolsvört, skiptir þjóð á leið í kosningar öllu máli. En um hana má ekki tala. Fólki er ekki treystandi til að taka afstöðu á upplýstum forsendum í jafn afdrifaríku máli og hér er um að ræða . Gegnsæið sem fyrir nokkrum mánuðum var megin krafa búsáhaldabyltingarinnar fær nú að fljóta til hafs í ærandi þögn.

Sér einhver glætu í málflutningi þessa fólks?

 

Tannhirða borgar sig

Munið að bursta tennurnar.

Skósólar verða á matseðlinum innan tíðar.

 Mynd 1: Google og með vitund um  málssókn

Mynd2: www.dailytelegraph.co.uk


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

:) Flissa ofaní kaffið mitt

.

Best að draga fyrir, púff þvílík fýla

.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 25.4.2009 kl. 13:08

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Sæll Gunnar, fallegur dagur hér í dag.

Góður maður sagði eitt sinn: að viðfangsefni lífsins væri að að halda fram veginn.

Verum samferða. 

Ragnhildur Kolka, 25.4.2009 kl. 15:28

3 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Ég sá umræðurnar og þótti mér hvorki Steingrímur né Jóhanna standa sig vel. Bjarni Benediktsson var hins vegar flottur í þættinum og mér er byrjað að lítast ansi vel á hann þó ég hafi ekki stutt hann til formanns í fyrstu.

Hilmar Gunnlaugsson, 25.4.2009 kl. 20:30

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já við verðum samferða Ragnhildur!

Gunnar Rögnvaldsson, 25.4.2009 kl. 20:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Kolka
Ragnhildur Kolka
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband