Leita í fréttum mbl.is

"Ferska og fríski"

Jó and STJÞað er aðeins farið að slá í glamúrinn sem "Gleðistjórnin" lofaði að bjóða upp á fyrstu dagana. Loforð um nýja tíma eru nú að taka á sig hrumleika ellinnar. Aldursforseti þingsins fengin til að veita forystu. Vá, ferskleikinn í fyrirrúmi. Og ekki tekur betur við þegar forystusauður rauðgrænni er dreginn fram. Maðurinn sem um árabil hefur verið ímynd forneskjunnar. Þessi kreppa ætlar ekki að fara mjúkum höndum um okkur.

Nýjabrumið fólst í kynhneigðinni og um tíma var slegið upp í fyrirsögnum í heimspressunni um þessa hýra stjórn; "Lesbisk stewardesse skal redde Island" sagði í Extrabladinu með flennu mynd að flugfreyjunni. En Jóhanna fékk ekki að njóta sérstöðu sinnar sem fyrsti samkynhneigði forsætisráðherrann í heiminum mjög lengi. Haldið ekki að forpokaðir frændur okkar í Noregi hafi verið fyrstir til að eiga samkynhneigðan forsætisráðherra. Og ekki lengra síðan en 2002. Þar með er ferskleikinn fokinn. En skyldi Norsurum eða yfirleitt nokkurri annarri lýðræðis þjóð nokkurn tíma hafa hugkvæmst að binda framkvæmdavaldið við dómsvaldið með lögum Guðs og manna?

Og enn fellur kusk á flibbann. Gleðistjórnin sem ætlaði að taka á pólitískri spillingu vill hefja hreinsunarátakið á pólitískum brottrekstri. Davíð Oddsson skal rekin hvað sem það kostar og um að gera, áður en skýrslan um störf Seðlabankans og viðvaranir hans til ríkisstjórnar er birt. Óttinn við hvað skýrslan ber í sér er greinilega lögum og siðviti sterkari.

Hatur er illur húsbóndi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Ógæfu Íslands verður margt að vopni. Hver með réttu ráði heldur að þetta fólk komi nokkru af viti í verk?

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 1.2.2009 kl. 15:59

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Athyglisverðir tímar fara nú í hönd. Við fylgjums með.

Ragnhildur Kolka, 1.2.2009 kl. 16:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Kolka
Ragnhildur Kolka
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband