Leita í fréttum mbl.is

Hvaða verði kaupir maður friðinn?

 Stalínismi

Þrátt fyrir stöðugar yfirlýsingar vinstri-friðarsinna um að barátta gegn hvers konar hernaðarbrölti sé barátta fyrir friði, þá skortir nokkuð upp á að þar fylgi sannfæring máli. Nú þegar fréttaflutningi af hrakförum Bandaríkjahers í Írak hefur loksins slotað vegna frábærs árangurs hans gegn uppreisnaröflum er eins og "friðelskendur" hafi fundið sína fullkomnu hvíld. Fáeinir hristu af sér slenið þegar Kína beitti aflsmunum í Tíbet, enginn virtist taka eftir hernaði Búrmastjórnar gegn hrjáðum þegnum sínum hvað þá vargöldinni í Zimbabwe og Súdan og enginn hreyfir mótmælum nú þegar Rússneski herinn leggur Georgíu að fótum sér. Á meðan Bandaríkjamenn eru ekki aðilar að beinni íhlutun ríkir þögn í herbúðum friðarsinna.  Varnarliðið

Þögnin núna vegna innrásar Rússa í Georgíu er dæmi um þessi sérstöku gleraugu sem vinstri-friðarsinnar bera. Kannski er Georgía ekki alveg búin að ná tökum á lýðræðishugtakinu, en þeir hafa kosið sér stjórn og forseta og þeir eru að feta sig fram veginn. Samkvæmt hádegisfréttu þá er þar jafnvel að finna stjórnarandstöðu sem nú þjappar sér um stjórnvöld og segist sjálf vilja ákveða hvenær hún losar sig við sinn forseta. Í Rússlandi í dag er stjórnarandstaðan jafn kyrfilega falin og hún var á sovéttímanum. Nú er ekki lengur haft fyrir því að sviðsetja réttarhöld, eins og Stalín gerði forðum, gegn þeim sem veita mótspyrnu og reyna að upplýsa almenning um ástandið, nú eru menn bara teknir af lífi hvar sem þeir eru staddir þegar böðlana ber að. Blessun hinna "friðelskandi" fylgir þeim.

Vopnahléssamningurinn milli Rússa og Georgíumanna sýnir að Evrópa er til í allt nema standa við bakið á þeim sem hallir standa. Sarkozy miðlaði þar málum á meðan byssukjaftar rússnesku skriðdrekanna stóðu í kokinu á Georgíumönnum. Rússar hafa aðkomu að öllum samningum og fyrsta krafan er að forsetinn víki áður en sest er að samningaborði. Þeir hafa öll tögl og allar hagldir og enn einu sinni fáum við að horfa upp á finnlandiseringu smáþjóðar í skugga vænisjúks stórveldis. Evrópa mun horfa á og vona að olían haldi áfram að renna inn á bensínstöðvarnar og í kyndiklefa húsa sinna, því Evrópubúar eru líka svo friðelskandi.

Enginn getur haldið því fram að innrásin í Georgíu komi þeim á óvart. Fyrrum sovétlýðveldin hafa alltaf vitað við hverju mætti búast. Sum náðu að forða sér inn í ESB og NATO önnur, sem ekki byggðu á gömlum tengslum, voru svifaseinni og lentu fyrir utan garð. En mun ESB og NATO hafa einhvern kraft til að verja þessi lönd ef á reynir? NATO hafnaði þátttökuaðild Georgíu og Úkraínu fyrir skömmu og við sjáum hvaða afleiðingar það hefur. Úkraína kallar nú á hjálp. Munum við leggja við hlustir? BjörninnHvað með Pólland sem beið ekki boðanna og skrifaði snarlega undir eldflaugavarnasamninginn við Bandaríkin. Nú er þeim hótað kjarnorkuárás. Er kjarnorkuárás á Pólland líkleg til að vekja "friðarsinna" af þyrnirósarsvefni sínum. Er Pólland nógu nálægt til að hrista upp í Evrópu?

Stríð er ekki kostur sem nokkur friðelskandi maður velur, en þegar þrengist um kostina þá tekur maður upp vopnin. Þrátt fyrir nýfengið ríkidæmi Rússa í orkumálum þá er margt sem þá skortir til að geta talist gjaldgengir. Þeir vilja sýni veldi sitt og auð víðar en hjá þrælaþjóðum sínum. Þeir vilja vera málsmetandi og hafa rödd í alþjóðamálum. Á þeim vettvangi þurfa þeir að sýna að þeir séu viðræðuhæfir. Ef yfirgangur og ofríki er eini samskiptamátinn sem þeir hafa yfir að ráða þá eiga Vesturlönd enn tækifæri til að setja þeim skorður. Vísa þeim úr NATO samráðinu (ef það hefur ekki enn gerst), leysa upp G-8 hópinn og stofna nýtt lýðræðisbandalag um þau málefni, halda þeim utan við Alþjóðaviðskiptastofnunina og síðast en ekki síst sniðganga vetrarólympíuleikana í Sokki 2014. Eftir reynsluna af loforðasvikum Kínverja í mannréttindamálum í tengslum við Ólympíuleikana nú, má gera ráð fyrir að fleiri en færri séu til í að reyna slíkt "boycott".

Númer eitt, þá má ekki bíða lengur eftir að segja STOPP. Gangi þetta ekki upp má búast við að Rússar stilli okkur upp fyrir framan þyngri og harðari vopnum. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Kolka
Ragnhildur Kolka
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband