Leita í fréttum mbl.is

Köld eru kvenna ráð

Stjórnunarstíll kvenna hefur oft verið til umræðu nú síðustu ár. Margar konur halda því fram að heiminum væri betur stjórnað ef konur hefðu þar meiri aðkomu. Nýleg dæmi sýna þó allt annað.

Flestir eru búnir að átta sig á stjórnunarstíl Ingibjargar Sólrúnar. Hann kallast kafbátahernaður og felur meðal annars í sér að kúvenda má stefnu hvenær sem hennar persónulegu hagsmunir bjóða svo.

Stjórnunarstíll Þórunnar Sveinbjarnardóttur hefur verið að koma í ljós á þeim tíma sem hún hefur setið sem umhverfisráðherra. Það er að segja ef hægt er að setja hugtakið stjórnun inn í þann stíl sem Þórunn beitir. Ráðleysið ríkti í ísbjarnarmálunum. Í því fyrra gaf hún alla stjórnun frá sér og sagði bara "gerið það sem gera þarf". Hið síðara mun verða henni til háðungar það sem eftir lifir. Þar vegur kannski þyngst ákvörðun hennar um að setja fjölmiðlabann á umræðuna. Gerræðisstíll er því nær skilgreiningunni um stíl Þórunnar.

Þetta stílbrigði er aftur komið á kreik, nú í nafni "náttúrunnar", sem umfram allt skal verja fyrir "græðgi" mannanna. Þórunn er þó ekki svo vitlaus að leggja til atlögu við sína eigin kjósendur. Nei, Helguvík skal þyrmt fyrir umhverfisúttekt. Hins vegar er henni ekki eins annt um sveitavarginn á norðausturhorninu. Hann getur étið það sem úti frýs.

Umhverfisráðherra opinberar með aðgerðum sínum gegn framkvæmdum á Bakka, þá mannfyrirlitningu sem er grunnur að allri sósíalískri hugsun, þ.e. að einstaklingurinn er einskis virði. Afkoma hans skiptir engu máli þegar "hugsjón" er annars vegar. Samfylkingin (því varla gerir Þórunn þetta án samþykkis flokks og formanns) er með þessu að segja að hún ætli ekki að taka þátt í því að rétta þjóðarskútuna af. Samfylkingin gerir sig stikkfrí og lætur frekar innistæður og eignir fjölskyldnanna í landinu brenna upp, en að taka þátt í því að koma skikki á fjármálin. Náttúran og Evrópusambandsaðild skiptir Samfylkinguna meira máli.

Stjórnunarstíll kvenna kemur víðar við sögu. Við erum að sjá sambærilega hluti gerast á Bandaríkjaþingi þessa dagana. Í gær sleit forseti þingsins, Nancy Pelosi, þinginu og send það heim í 5 vikna frí, frekar en að láta reyna á fylgi þingmanna við frumvarp Bush forseta um að aflétta banni við olíuborun á friðuðum svæðum. Bensínkostnaður er að sliga bandarískan almenning og kannanir sýna að hátt í 80% landsmanna vilja að banninu verði aflétt. Þingmenn demókrata hefðu staðið frammi fyrir erfiðri ákvörðun.

En frekar en að sinna hlutverki sínu gagnvart bandarískum neytendum kýs Pelosi að hindra að vilji demókratískra þingmanna komi í ljós. Hin vellauðuga Pelosi er nefnilega að "bjarga plánetunni". Bensínverð skiptir hana engu, fyrir utan að hún vill bara að einhverjir aðrir en Ameríkanar sjái um borunina, því fyrir aðeins 2 mánuðum síðan kröfðust þingmenn demókrata að Sádar ykju framleiðslu sína um milljón tunnur á dag.

Repúblikanar voru ekki sáttir við þessi málalok, vildu að tillagan yrði borin undir atkvæði. Þeir neituðu því að yfirgefa þinghúsið og héldu umræðum áfram. Þá birtist stjórnunarstíll Pelosi í sinni skýrustu mynd. Eins og gamalreyndur KGB foringi lét hún vísa fréttariturum út úr þinghúsinu. Þegar það dugði ekki lét hún slökkva á hljóðnemum og þegar það dugði ekki lét hún slökkva ljósin í húsinu. Má orða það svo að þar með hafi demókratar á Bandaríkjaþingi slökktu lýðræðisljósið.

Völd eru vandmeðfarin. Framferði þessara kvenna ber ekki með sér að konum sé sérstaklega treystandi fyrir völdum. Þessar konur eru þó ekki endilega fulltrúar kvenkyns, þótt þær séu vissulega fulltrúar ákveðins hóps kvenna. Sem betur fer eru til konur sem kunna að umgangast völd af virðingu, það gera þær konur sem átta sig á að virðing fyrir fólki skiptir meira máli en virðing fyrir völdum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgerður Jóna Flosadóttir

Sæl Ragnhildur, mjög góður pistill hjá þér og orð í tíma töluð. Þessi mída að konur stjórni betur enn karla er tóm vitleysa.

Eigðu góðan dag.

Ásgerður Jóna Flosadóttir, 2.8.2008 kl. 13:05

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Takk, sömuleiðis

Ragnhildur Kolka, 2.8.2008 kl. 13:41

3 Smámynd: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Er búinn að hanna bol fyrir þig. Kveðja, Aðalhönnuðurinn.

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 2.8.2008 kl. 15:28

4 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Bíð spennt að sjá

Ragnhildur Kolka, 2.8.2008 kl. 15:31

5 Smámynd: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Frábær grein. Ég var búinn að gefa upp alla von, hélt þú værir hætt að blogga.

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 2.8.2008 kl. 15:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Kolka
Ragnhildur Kolka
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband