Leita í fréttum mbl.is

Já, hvurn fjandann er verið að borga þeim fyrir

Mér datt þetta myndband í hug þegar ég sá að Alþingi var að samþykkja ný fjárlög með 20 milljarða halla og inn í þeirri upphæð eru 300 milljónir til stjórnmálaflokka. Frústrasjón mín var sú sama og þessa náunga sem horfir upp á forseta sem tekur ekki þátt í að leysa fjármálavanda eigin lands af því að hann telur það dæmt til að mistakast. Fyrr má nú vera sjálfsupphafningin.  

 

Hér aftur á móti er fjármálaráðherra að þjösna í gegn fjárlögum sem skilja skuldirnar eftir fyrir börn framtíðarinnar á meðan skrattakollur tryggir fjármálalegan stöðuleika síns flokks og annarra sem sækjast eftir þægilegri innivinnu. Hér var verið að samþykkja fjárlög þar sem 300 milljónir eru teknir úr vösum skattgreiðenda og afhentar fólki og flokkum sem enginn kærir sig um að styrkja. Allt í nafni lýðræðis. En það er ekkert lýðræðislegt við það að taka fé úr vasa eins til að borga öðrum laun fyrir að vinna að gæluverkefnum sínum. Og það er ekkert lýðræðislegt við það að taka fé úr vasa eins til þess að hindra að aðrir sem vilja vinna landi og þjóð gagn komist í aðstöðu til þess. Og enn síður er eitthvað lýðræðislegt við það að þingmenn skammti sér fé úr sameiginlegum sjóði til að viðhalda setu sinni á þingi.  

Tilvist þingmanna er aðeins réttlætanleg ef þeir vinna þjóð sinni gagn; sjái til þess að aðstæður séu slíkar að þegnar landsins hafi vinnu svo þeir geti framleytt sér og sínum. Það erum við ekki að sjá í þessum fjárlögum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Baldursson

Christie er einhver alskemmtilegasti stjórnmálamaður í heiminum í dag,en líka sá verkvísasti. Hann kann að rata að kjarna mála og horfa fram hjá orðaflaum uppskafninganna. Hann lætur ekki fjölmiðla draga sig á asnaeyrunum með einhverjar uppskáldaðar dramatískar spunaþvælur.

Það er ansi stór hópur sem vill sjá hann fara í framboð til að leða Repúblikana í baráttunni um forsetaembættið... það er reyndar enn undiralda í þá áttina, að hann eigi enn eftir að blandast þar inn...

Haraldur Baldursson, 13.12.2011 kl. 05:39

2 Smámynd: Haraldur Baldursson

En hérna heima fyrir er enginn Christie.

Það hefur harla lítið breyst síðan fyrir hrun, hvað útgjaldafylleríið varðar. 101 klíkan er enn á ný kominn af stað með lestarsamgöngur á milli 101 Reykjavík og Keflavíkur....sennilega til að hafa sem léttasta leið til Brussel???

En varðandi útgjöldin...það er svo víða hægt að skera niður. Og það þarf að fara að breyta nálguninni með ríkisumsvifin hjá okkur. Þjónustan þarf að minnka og þá skattarnir í leiðinni. Sjálfsákvörðunaréttur fólks þarf að vaxa, sm og ábyrgðin.

Hér (og víðast á Norðurlöndunum) mærum við heilbrigðiskerfið hjá okkur... en hvað er gott við heilbrigðiskerfi, þar sem sjúklingar þurfa að bíða mánuðum (og oft lengur) eftir aðgerðum ?

Það þarf að stokka þessi spil að nýju.

Haraldur Baldursson, 13.12.2011 kl. 05:45

3 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Christy er góður, en það er líka annar ríkisstjóri, Scott Walker í Wisconsin, sem hefur framkvæmir það sem hann segist ætla að gera og hefur tekist að snarbæta áður vonlausa skuldastöðu ríkisins. Hann lætur ekki ganga yfir sig. Hann hefur reyndar ekki eins litríkan tjáningarmáta og Christy, en hafi maður áhuga fyrir stjórnmálum í BNA, þá er vert að fylgjast með honum.

Ragnhildur Kolka, 13.12.2011 kl. 13:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Kolka
Ragnhildur Kolka
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband