Leita í fréttum mbl.is

Karpað um Kolvetnisgjald

er fyrirsögn fréttar í Morgunblaðinu og er þá átt við hugmynd skattmanns að "breikka skattstofninn" m.þ.a. leggja á sérstakan kolefnisskatt. Fyrirtækin greiða nú þegar drjúgan skilding í kolefnisgjald eða sem svara 75% af gjaldi losunarheimilda á markaði í Evrópu, en nú skal gjaldið hækkað og að auki á það nú að ná til jarðefna í föstu formi. Verði af þessum áformum eru líkur á að einhver þeirra fyrirtækja, sem nú þegar starfa hér undir þessu ákvæði, pakki saman og yfirgefi landið. Önnur sem áformað höfðu að setja hér upp starfsemi munu öll taka til fótanna og forða sér hið fyrsta. Enda vandséð að sá sé ekki tilgangurinn með uppátækinu.

Smog

En hvað er þá að gerast á hinum alþjóðlega kolefnis vettvangi? Ríkir þar friður? Nei, svo sannarlega ekki. Á mánudaginn á að hefjast enn ein loftslagsráðstefnan í Durban. Líklega sú þriðja. Og nú eru menn ekki einu sinni að reikna með að árangur náist. Jafnvel talið líklegt að Kyoto samkomulagið renni sitt skeið í árslok 2012 "never to be heard of again". Klúðrið í Kaupmannahöfn hefur ekki aukið líkurnar á að betur fari í þetta sinn.

 TréOg Græni Loftslags sjóðurinn sem átti að gefa Kaupmannahafnar ráðstefnunni eilíft líf er að öllum líkindum andvana fæddur. Peningalöndin Bandaríkin og Sádi Arabía eru ekki tilbúin að gefa samþykki sitt fyrir stofnun sjóðsins sem átti að fleyta auðæfum Vestrænna ríkja til loftslags verkefna í þróunarlöndunum. Ef BNA og SA eru ekki með eru líkurnar hverfandi að af stofnun sjóðsin geti orðið, jafnvel þótt Brazilía, Kína og Indland berji í borðið og heimti sitt og engar refjar.

ESB sem harðast hefur gengið eftir stofnun sjóðsins er líka farin að draga nokkuð úr kröfunni. Verðfall á losunarheimildunum af völdum evru-kreppunnar er byrjað að segja til sín, sem aftur getur haft neikvæð áhrif á samkomulagið. Ef enginn árangur næst í Durban er líklegt að Kyoto samkomulagið renni sitt skeið í lok næsta árs.

En Steingrímur kærir sig kollóttann um það því alltaf má finna upp nýja skatta ef vilji er fyrir hendi. Og Steingrím skortir ekki viljann.

Viðbót 28. nóvember:

Nú nokkrum klukkustundum áður en Durban ráðstefna Sameinuðu þjóðanna á að hefjast er hvergi minnst á hana í blöðum eða fréttatímum. Hvorki hér né erlendis. segir það ekki eitthvað um hvers menn vænta eða vænta ekki af þessari ráðstefnu.

Kannski ef ráðstefnan kemur sér saman um að fordæma Ísrael er von til að RÚV, í það minnsta, segi frá henni.

mynd1: www.cenvironment.blogspot.com


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Kolka
Ragnhildur Kolka
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband