Leita í fréttum mbl.is

Hetjudáđir ráđherra, vćnisýki borgarstjóra og opinberun ársins.

Fjölmiđlar fóru víđa í dag og komu stundum á óvart. Ég kemst auđvitađ ekki hjá ađ nefna fyrst grein sem ég fékk birta í Morgunblađinu um skipulagsmál. Málefni sem ég tel ađ eigi ađ vera uppi á borđum en ekki í laumuáćtlun borgaryfirvalda međ bakröddum Húsafriđunarnefndar. Ţađ er óásćttanlegt ađ fámenn klíka laumi fortíđardraumum sínum upp á borgarbúa, sem síđan eiga ađ borga brúsann. Venjulegt fólk er löngu hćtt ađ reka erindi sín í miđbć Reykjavíkur, ţví hann hefur veriđ frátekinn fyrir túrista og lattelepjur. Hvenćr nćturlífinu verđur úrhýst * er bara spursmál um tíma.

En MBL kom víđar viđ. Ţar mátti t.d. líka sjá snotra litla frétt um hetjulega yfirlýsingu utanríkisráđherrans okkar á vef ráđuneytisins. Fréttin er í stćrstum dráttum sú sama og kappinn Össur andađi yfir íslenska ţjóđ í sjónvarpsfréttum í gćrkvöldi. Össur hvetur kínversk stjórnvöld til ađ sleppa Liu Xiaobo, handhafa friđarverđlauna Nóbels úr haldi. Einhvern veginn stóđ ég í ţeirri trú ađ hafi menn ţörf fyrir ađ koma vilja sínum á framfćri ţá gerđu ţeir ţađ best viđ ţann sem máliđ varđar. Hvađa erindi ţessi yfirlýsing átti viđ sjónvarpsáheyrendur, en ekki kínversku delegasjóninni á Melunum, er ofar mínum skilningi. Nú stendur líklega upp á íslenska ţjóđ ađ bera bođ keisarans áfram. 

Pressan flutti enn eina fréttina af Fés-síđu borgarstjórans. Hann er úrvinda af vćnisýki og telur "valdamikla menn hugsa sér ţegjandi ţörfina". Fés-gćlur allar nćtur eru greinilega ekki ađ gera honum neitt gott og ţađ vćri góđverk ef einhver laumađi ţví ađ borgarstjóra ađ andlegt heilbrigđi á mikiđ undir nćgum nćtursvefni komiđ. Jón Gnarr kom fullfrískur til starfans og hefur ađeins setiđ í 4 mánuđi, jafnvel Ólafur F. hafđi meira úthald.

Stöđ2 var međ ágćta úttekt á greiđsluvanda heimilanna og hugsanlegum lausnum ţar á. Ríkisstjórnin er nú ađ íhuga ađ velta ţeim vanda yfir á skattgreiđendur og lífeyrisţega. Líklega endar bagginn ţá bara á baki lífeyrisţeganna ţegar skattgreiđendurnir verđa allir farnir til Noregs. 

En smellur ársins er í mínum huga grein Jóns Trausta á dv.is. Ţađ var ákveđin hvíld í ţví ađ fá friđ fyrir síendurteknum níđgreinum hans um Davíđ, Bjarna og Sjálfstćđisflokkinn. Í dag tók hann upp hanskann fyrir karlpening ţessarar ţjóđar, ţegar hann benti á augljósa afturför jafnréttisbaráttunnar. Nú hafi konur gengiđ inn í ţađ hlutverk karla sem ţćr hafa gagnrýnt hvađ mest, ţ.e. ađ afnema rétt ţeirra til orđs og ćđis. Ljótustu skammaryrđin sem nú heyrast eru: "eintóna kór karla" (eignađ Svandísi Svavars) og oftast er litarháttur ţeirra látinn fylgja međ. PaulOskar bćtir um betur og lúskrar á óvinum sínum međ bareflinu "hvítir karlar í jakkafötum"  og er ţá álíka vígalegur og ţćr vinkonur Ţorgerđur Katrín, Ingibjörg Sólrún og Svandís, ţegar ţćr eru upp á sitt besta. Og Jón Trausti opinberar leynda trúhneigđ ţegar hann minnir á bođskap Jesú (til vonar og vara Kants ef lesendur deila ekki međ honum trúarhita) um ađ gera ekki öđrum ţađ sem ţeir vilja ekki ađ ađrir geri ţeim. Góđ ádrepa og ţörf og ég sé JT í alveg nýju ljósi. 

Ţađ verđur ađ segjast ađ ţessi pistill JT kom mér rćkilega á óvart, "Made my day" eins og sumir mundu segja.

*Viđbót 13. okt:    Var varla búin ađ sleppa orđinu ţegar borgarstjóri tekur fyrsta skrefiđ í sterilíseringu miđborgarinnar.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Ragnhildur Kolka
Ragnhildur Kolka
Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband