Leita í fréttum mbl.is

Niðurskurður, uppgjöf eða undanbrögð?

Hver var tilgangur fjármálaráðherra með þessum fjárlögum sem hann kynnti síðastliðinn þriðjudag? Fjárlög sem jafnvel hans eigin samflokksmenn sjá að ekki standast neinn raunveruleika. Er Steingrímur búin að gefast upp á ríkisfjármálunum? Varla, hann hefur aldrei skemmt sér eins vel. Að kafa dýpra og dýpra ofan í vasana hjá fólki hefur aðeins elft hann og stælt. En þá hlýtur maður að spyrja: Hver var tilgangurinn?

Sá hann engan annan möguleika en leggja landsbyggðina í auðn? Voru engar góðærisstofnanir sem mátti skoða með skerðingu í huga? Fjöldinn allur af slíkum stofnunum var komið hér á fót á meðan svokölluð "frjálshyggjustjórn" sat hér við völd. Stofnanir sem Steingrímur studdi eindregið að settar yrðu á fót. Af hverju er engin skerðing eða niðurlagning þessarar álfabyggðar í frumvarpi Steingríms?

Vegna þess hve fáránlegar þessar niðurskurðartillögur eru leitar óneitanlega á mann grunur um að Steingrímur hafi einmitt verið að kalla eftir þessum viðbrögðum? Gamall refur sem hann er. Setja allt á annan endann, segja svo að niðurskurður valdi slíkum sársauka og ólgu að ekki verði áfram haldið. Stjórnarandstaðan krefjist líka að látið verði af þessari sláturtíð. Er þá nokkuð annað að gera en leggja hnífnum, viðhalda bákninu og fara enn dýpra í vasana á skattgreiðendum? Grísinn bara grillaður áfram. 

Grísinn grillaður áfram

Steingrímur og co ætla ekki að skerða neina þjónustu úti á landi, þau ætla heldur ekki fleygja út neinum silkihúfum (nema þær sitji á sálfstæðishausum). Steingrímur ætlar að mæta í Kastljósið til Þóru og útskýra fyrir þjóðinni að það hafi bara verið svo illa tekið í tillögur hans að hann geti ekki farið gegn vilja þjóðarinnar. Engin niðurskurður verði í ár né meðan hann fær ráðið.

Allir klappa Steingrími lof í lófa og Húsvíkingar munu leggja til að hann verði tekinn í dýrlingatölu (stage left og tjaldið fellur).

Mynd: www.stormsker.blog.is

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Kolka
Ragnhildur Kolka
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband