Leita í fréttum mbl.is

Velferðarleiðinn = Evrópuleiðinn

Rakst á ræðubút á WSJ sem mér sýnist eiga erindi inn á bloggið. Erindið flutti Charles nokkur Murray í síðustu viku hjá The American Enterprise Institute: Þessi kynning fær eflaust hárin til að rísa á einhverjum, en ég læt samt vaða.

Í ræðunni fjallar Murray um ökuferð um Svíþjóð. Í hverjum bænum á fætur öðrum sá hann yndislega fallegar kirkjur, ný málaðar og umkringdar vel hirtum görðum og allt niðurgreitt af sænska ríkinu. En kirkjurnar voru tómar og það jafnvel á sunnudögum.

Hann nefnir líka að Skandinavar og reyndar Vestur-Evrópubúar stæri sig af "barnvænni" stefnumótun, sem einkennast af vel útí látnum meðlögum, fríum leikskólum og löngu fæðingarorlof. Þó er fæðingartíðni langt undir því sem nauðsynlegt er til að viðhalda mannfjölda og hjónaböndum fer einnig fækkandi. 

Í þessum löndum er vinnumarkaðurinn einnig skilmerkilega verndaður af ríkinu með margvíslegu regluverki auk ríkulegra kaupauka í kjarasamningum.  Í flestum þessara landa lítur fólk á vinnuna sem illa nauðsyn, sjaldnast sem val. Hvergi er hlutfall þeirra sem eru ánægðir með vinnu sína lægra. Þetta kallar Murray - Evrópu heilkennið.

Er velferðin að drepa okkur úr leiðindum? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér þessa færslu Ragnhildur

Fleiri fréttir frá Svíþjóð

========================

Auschwitz-overlevende skal betale skat i Sverige af erstatningssum

Miriam Landau blev tvunget til slavearbejde under 2. Verdenskrig inden hun i 50'erne flyttede til Sverige. Da hun endelig modtog kompensation besluttede den svenske stat at beskatte erstatningssummen og samtidig sænke hendes pension.

Den nu 84-årige Miriam Landau har ikke haft et let liv. Efter en tid i en ghetto i Ungarn blev hun overført til de tyske koncentrationslejre Auschwitz og Dachau, hvor hun blev tvunget til hårdt slavearbejde. Efter 2. Verdenskrig kunne hun endelig flygte til Sverige. Hendes trængsler ser dog tilsyneladende ikke ud til at være helt omme endnu, skriver gt.se.

Miriam Landau har nemlig ikke kunnet arbejde i Sverige på grund af skader pådraget under slavearbejdet. Dette betyder, at hun er berettiget til at modtage en kompensation på 80.000 svenske kr. af den tyske stat. Den svenske stat mener dog, at denne kompensation tæller som en indkomst for den syge Miriam Landau. Derfor skal halvdelen af den betales i skat og hendes pension skal i øvrigt sænkes.

Miriam Lundau har indtil videre fået sin sag hørt i den svenske Länsrätt og Kammarrätt. Her har den svenske stat har fået medhold i sine krav til den tidligere Auschwitz-fange. Nu skal sagen ifølge gt.se afgøres i den svenske Regeringsrätt.

Auschwitz-overlevende skal betale skat i Sverige af erstatningssum

========================

Þetta smá batnar alltaf

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 18.3.2009 kl. 21:27

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Sæll Gunnar og þakka þér fyrir innslagið.

Ég sé að þú gerir þér grein fyrir að með þessari færslu er ég ekki að fetta fingur út í að fólk lifi mannsæmandi lífi. Málið snýst um að virða það sem við höfum, en verðgildi hluta fer eftir því hver greiðir. Á endanum þarf einhver að borga og þess vegna liggur budda Miriam svo vel við höggi. 

Kristni, börn og vinna eru afgangsstærðir í velmegunarþjóðfélögum.  Þetta eru niðurgreidd þægindi sem fólk tekur við án skuldbindinga, eða eins og gamalt máltæki segir "alltaf má fá annað skip og annað föruneyti".

Kannski eru kreppur hluti af jöfnunni sem tengja okkur aftur við jörðina.

Ragnhildur Kolka, 18.3.2009 kl. 22:47

3 Smámynd: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Ég held að sumir á Íslandi séu einskonar boðflennur í landinu, eru laumugen sem komu með sjálfstæðum frelsisþenkjandi mönnum sem flúðu ok kóngsins/ríkisins. Greina þarf þessa aumingja frá og senda aftur til Skandinavíu. Þetta segi ég nú í gríni, en öllu gríni fylgir stundum engin alvara, eins og kunnugt er. Bölvaður veri þessi hugsunarháttur að ríkið eigi að vera upphaf og endir alls. Ég frábið mér það.

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 18.3.2009 kl. 23:58

4 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Sigurgeir; Samkvæmt nýjustu skoðanakönnun munu total ríkisafskipti verða hlutskipti þeirra sem ekki flýja land á næstu vikum.

Ragnhildur Kolka, 19.3.2009 kl. 19:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Kolka
Ragnhildur Kolka
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband