Leita í fréttum mbl.is

Barnung brúður

child brideÞær eru ekki allar háar í loftinu hinar íslömsku brúðir. Átta ára gömul stúlka leitast nú við að fá skilnað frá eiginmanni sínum sem er á sextugs aldri. Málið verður tekið fyrir innan skamms samkvæmt frétt í sádiska dagblaðinu Al-Watan.

Móðir stúlkunnar styður hana til skilnaðarins, en faðirinn  hafði gefið hana eða selt án vitundar þeirra mæðgna. Vonir standa til að skilnaðurinn gangi eftir því vitað er um eitt slíkt dæmi í Yemen fyrr á þessu ári. Von sem ekki byggi á sérlega sterkum grunni. Mannréttindahópar hafa tekið sig saman um að skrifa sádísku konungsfjölskyldunni bænarbréf, sem segir líka nokkuð um sjálfstæði réttarkerfisins.

Ekki yrði ég hissa þótt Sádar styddu okkur frekar til setu í Öryggisráðinu en skilnað stúlkunnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Þetta er engu betra en allt barnapornóið sem flæðir um allt á vestulöndum.

Svanur Gísli Þorkelsson, 24.8.2008 kl. 17:37

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Auðvitað er þetta ekkert annað en löglegt barnapornó.

Ragnhildur Kolka, 24.8.2008 kl. 17:44

3 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Hvar er mansal og barnaklám löglegt?

Svanur Gísli Þorkelsson, 24.8.2008 kl. 18:06

4 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Víðar en þú hyggur. En stúlkubörn í Pakistan, Sádi-Arabíu, Yemen og svo ekki sé talað um íslömsk ríki í Norður-Afríku búa við þetta ástand. Þessi sömu stúlkubörn geta líka átt von á því að eigimennirnir skilji við þau þegar þau gagnast ekki lengur eða nýjabrumið er af.

Mannsal, bæði karla og kvenna viðgengst mun víðar og þá er ég ekki að tala um hreina kynlífsþræla eins og við þekkjum hér á vesturlöndum. Inverskar og filipískar konur sem sendar er í þjónustustörf til Sádi-Arabíu eru í raun þrælar. Egypskir og indverkir karla sem stunda byggingarvinnu í olíuríkjunum eru þrælar.

Nýlega féll dómur í New York yfir indverskum hjónum sem hnepptu tvær þjónustustúlkur í þrældóm. Í NY er athæfið ekki löglegt. sá er munurinn.

Ragnhildur Kolka, 24.8.2008 kl. 18:36

5 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Allar þessar þjóðir sem þú nefnir hafa undirritað mannréttindasáttmála sameinuðu þjóðanna og þar með staðfest að í lögum þeirra finnist ekki forsenda fyrir löglegu mannsali eða barnaníði. Nú ert þú að segja að þessar þjóðir hafi breytt löggjöf sinni eða blekkt Sameinuðu þjóðirnar. Ég veit að svo er ekki og að þetta athæfi er ólöglegt í öllum þessum ríkjum sem þú nefnir. Það gengur hins vega misjafnlega að fylgja þessum lögum eftir, eins og á vesturlöndum einnig.

Svanur Gísli Þorkelsson, 24.8.2008 kl. 18:48

6 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Það er alltaf pínulítið "rörende" að heyra og sjá að fólk trúi enn á Sameinuðu þjóðirnar og samtakamátt þeirra. Þú, eins og svo margir aðrir, lokar augunum fyrir því sem þar er að gerast.

Árið 1990 kom ráð íslamskra þjóða saman í Kairó og þar varð til svokölluð Kairó-samþykkt. Hún gengur þvert á Mannréttindasáttmála SÞ, því í henni er samþykkt að sharí´a lögin séu viðmið mannréttinda í íslömskum ríkjum. Þessi samþykkt afnemur sáttmálann sem þessar þjóðir undirgengust þegar þær fengu inngöngu í SÞ.

Alls staðar þar sem ríkja shai´a lög, þar eru þau jafnframt landslög.

Ragnhildur Kolka, 24.8.2008 kl. 19:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Kolka
Ragnhildur Kolka
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband