Leita í fréttum mbl.is

Minntist einhver á opinn tékka?

Þeir eru skemmtilega ruglaðir þessir Samfylkingarmenn. Dögum saman höfum við mátt hlusta á sönginn um opnu tékkana sem nýr borgarstjórnarmeirihluti  gaf út með kaupunum á Laugavegskofunum. Og hvað gerist svo?

Viðskiptaráðherra lýsiti því yfir í kvöld að "ekki komi til greina að missa viðskiptabankana úr landi". Ef fúahjallarnir á Laugaveginum eru tilefni fyrir Samfylkinguna að leggjast í látlaus krampaflog, hvað segja þeir þá um ætlun Björgvins G. að þvinga bankana til að starfa á Íslandi? Borgin greiddi hátt í 600 milljónir fyri kofaræksnin. Uppgjör bankanna eru að birtast þessa dagana og þar er hagnaðurinn að skríða upp tugi milljarða. Hvað ætlar Björgvin að reiða fram til að halda bönkunum í landinu?

Fólk sem trúir því að skuldin hverfi við það að ríkið taki hana á sig kippir sér líklega ekki upp við yfirlýsingar viðskiptaráðherrans. Mér rennur kalt vatn milli skinns og hörunds.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Ásgeir Gunnarsson

Sæl Ragnhildur

Pistlarnir þínir eru með þeim bestu hér á Mbl blogginu. Hnitnir, stuttir og frumleg sjónarhorn, ég les þá alltaf.

Kveðja Gunnar

Gunnar Ásgeir Gunnarsson, 9.2.2008 kl. 10:52

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Gott að heyra að einhver hlustar. Hef stundum á tilfinningunni að ég sé ekki bara á skjön, heldur líka anakrónísk.

Ragnhildur Kolka, 9.2.2008 kl. 21:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Kolka
Ragnhildur Kolka
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband