Leita í fréttum mbl.is

Sögur af vinstrimönnum og villum þeirra: þriðji hluti

... og enn heldur sagan áfram:

En þessi vinstri blinda á það sem miður fer í hinum íslamska heimi er ekki bundin við Ísland. Vinstri menn um allan hinn vestræna heim, sem lifa í þeirri blekkingu að þeir séu frjálslyndir, hafa skilgreint sína eigin menningu sem óvininn. Mottóið er: Allt er betra en okkar menning. Ef þeir þurfa að loka augunum fyrir voðaverkum eða slá af í baráttunni fyrir jafnrétti kynsystra, þá kynfæralimlestingarþað. Við sjáum enga mótmælafundi, hvorki hér né annars staðar, þegar uppvíst er um einhverja óhugnanlegustu trúarathöfn múslímskra samfélaga, kynfæralimlestingar stúlkubarna. Þó er talið að um 80-120 milljónir múslimskra kvenna hafi undirgegnist þessar pyntingar. Og þetta er ekki bara að gerast í svörtustu Afríku. Þúsindir kvenna um alla Evrópu eru limlestar og talið er að í Bretlandi búi um 66.000 konur við þessi örkuml. Nú fyrst, eftir að bann við þessum óhugnanlega verknaði hefur verið í gildi í tæpa þrjá áratugi í Bretlandi, er fyrsta málshöfðunin á hendur gerendum að koma fyrir dómstóla þar. Ekki fingri hefur verið lift af hálfu „boðbera réttlætisins“ til varnar þessum konum, sem aldrei eiga eftir að njóta kynlífs og aldrei munu ala barn án óbærilegra þjáninga, þ.e. ef þeim blæðir ekki út áður. Þessi undarlega þögn verður þó skiljanleg í ljósi þess að drottning valkyrjanna, rithöfundurinn og kvennfrelsishetjan Germaine Greer hefur lýst því yfir að umskurður kvenna sé „hluti af hinum marglita vef menningarbundinnar sjálfsmyndar“ og hafi merking þessara orða á einhvern hátt verið misskilin þá bætir hún um betur og segir „fegrunaraðgerðir eins eru limlestingar annarra“. Slíkur er undirlægjuháttur vestrænna femínista gagnvart íslamskri kvenfyrirlitningu.  

777333-germaine-greerGermaine Greer hefur þegið boð að halda hátíðarræðu um áhugamál sín við Brandeis háskóla í Massachusetts fylki í Bandaríkjunum. Þessi virta menntastofnun hefur nýlega verið í fréttum fyrir að afturkalla boð um heiðursnafnbót og hátíðarræðu til handa baráttukonunni Ayaan Hirsi Ali. Afturköllunin kom í kjölfar mótmæla frá samtökum múslima sem kallast CAIR (Council on American-Islamic Relations) og eiga rót að rekja til Múslimska Bræðralagsins. Nú vill svo til að Hirsi Ali býr yfir öllu því sem fjölmenningarmafían með femínista innanborðs gefur sig út fyrir að berjast fyrir. Hún er kona, hún er svört, hún er trúleysingi, hún er innflytjandi og hún er umskorin. Hvað vilja menn hafa meira? En þá bregður svo við að hinir herskáu „frjálslyndu“ femínistar hafa ekki sagt múkk. Engar fjöldagöngur vegna þessarar háðuglegu framkomu hins „virta“ háskóla gagnvart þessari hugrökku baráttukonu. Engar mótmælasetur. Engin kröfuspjöld. Og hvernig skyldi standa á því? Berum það saman við mótmælin og upphrópanirnar þegar allt varð vitlaust vegna gítarplokkaranna í Moskvu. Þeir völdu að vanhelga athöfn í rétttúnaðarkirkjunni með gjörningi sínum; særa með því trúarvitund fólks. ayaan_hirsi_ali-300x200Utanríkisráðherra Íslands kom mótmælum til Putins forseta (eflaust í nafni íslensku þjóðarinnar) og trúðurinn Jón Gnarr framdi gjörning. Hirsi Ali hefur sagt sig frá trú sinni og fyrir það og baráttuna gegn viðurstyggilegum misþyrmingum á konum í nafni íslamtrúar kallað yfir sig dauðadóm (fatwa).  Samstarfsmaður hennar, kvikmyndagerðarmaðurinn Theo Van Gogh, var tekinn af lífi á viðbjóðslegan hátt, fyrir augliti fjölda fólks á götu í höfuðborg Hollands, fyrir að styðja hana í baráttunni. Viðbrögð vinstrielítunnar voru að draga kvikmynd Van Gogh, Submission[1], út úr kvikmyndahátíða hringekjunni svo engin merki sitji eftir. Og vinstri menn, sem vegna einhverrar undarlegrar krumpu á sálinni kalla sig „frjálslynda baráttumenn fyrir réttlæti“, þegja þunnu hljóði. Hirsi Ali á engan stuðning meðal þeirra „frjálslyndu“. Henni til varnar kemur enginn Össur, Ögmundur eða Gnarr. Engin Sóley og engin Halla. Þau hafa lýst yfir bandalagi með óvinum hennar með þögn sinni. Óvininum sem vill hana feiga af því að hún hefur hafnað trú hans.

[1]   Submission = undirgefni, er bein þýðing orðsins „islam“  á arabísku.

Mynd # 1 er tekin af : www.downeastblog.blogspot.com

Mynd # 2 er tekin af: www.heraldsun.com.au

Mynd # 3 er tekin af: www.legalbriefcase.org


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnhildur Kolka
Ragnhildur Kolka
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband