Leita í fréttum mbl.is

Óráđsía í ESB 1.

 ESB fjárlög

ESB ćtlar ekki ađ láta grasiđ gróa undir fótum sér. Nú skal koma vitinu fyrir ţessa bćndalubba sem hafa ţverskallast viđ gyllibođunum frá "góđgerđarstofnuninni" í Brussel. Sambandiđ er nú fariđ ađ fjármagna blađaútgáfu á Íslandi og beinir áróđri sínum til bćnda. Ţar er gumađ af ţví ađ frá upptöku EES samningsins hafa skattgreiđendur ESB mátt, óspurđir, senda sem svarar 11 milljörđum króna til eins ríkasta lands heims. Fyrir ţessar krónur keypti sambandiđ sálir Samfylkingarinnar. Ţetta er verđmiđinn. Ellefu milljarđar króna. Jafnvel Grikkir, Írar og Eistar máttu grafa í sínar léttu pyngjur svo Íslendingar gćtu stćrt sig af ađ vera ölmusumenn ESB. 

Ţađ er óneitanlega fróđlegt ađ fylgjast međ ţessum fréttaflutningi. Lítiđ hefur hins vegar fariđ fyrir fréttum af fjárlagagerđ sambandsins. Drög ađ fjárlögum nćsta árs liggja nú fyrir og ţar velkjast stórar fjárhćđir milli manna. Tćpir €150 milljarđar fara í batteríiđ. Af ţví fara 5.6% í eigin rekstur, en ađeins 1.4% í málaflokkinn frelsi, öryggi og réttlćtismál. Viđ vissum svo sem ađ réttlćtismál ćttu kki upp á pallborđiđ hjá sambandinu, í ţađ minnsta hvađ lýđrćđiđ varđar en 8.3 milljarđar evra er nokkuđ vel út í látiđ fyrir stjórnsýslu sem hefur ekki getađ fengiđ reikninga sína samţykkta í 15 ár  samfleytt og fer svo fram á 6.8% hćkkun framlaga frá ađildarríkjunum. Ţetta gerist á sama tíma og flest ađildarríkin eru ađ skera niđur sín útgjöld og sum niđurfyrir sultarmörk.

Er ESB góđur vörsluađili fyrir annarra manna peninga gćti einhver spurt? Tćpast eđa telja menn vel haldiđ á fjármunum skattgreiđenda í sjónvarpsstöđ sem kostar 1.4 milljarđ króna í árlegan rekstur en státar ađeins af 830 áhorfendum per dag. Stöđin var stofnsett 2008 en ţurfti €9 milljón í aukaframlag ađeins 2 árum síđar. Nú krefjast ţingmenn ţess ađ stöđinni verđi lögđ af, en hver hlustar svo sem á ţessa ţingmenn. Slíkt áróđurstćki er battaríinu ómissandi.

EuroparlTV er ekki eina gćluverkefniđ sem ţingiđ í Brussel hefur á sinni könnu. Ţingiđ útdeilir auk ţess ógrynni fjár í alls kyns verđlaun, eins og vegna kvikmynda, blađamennsku, kynningarstarfsemi um Evrópusamruna  og svokölluđ Sakharov-verđlaunin sem veitt eru fyrir baráttu fyrir frelsi. Áriđ 2011 voru verđlaunin veitt 5 forsprökkum frelsisbaráttu sem gengur undir nafninu "arabíska voriđ". Eins gott ađ drifiđ var í ţessari afhendingu núna áđur en ţessi lönd lokast aftur inn í myrkur miđalda sem ţau hafa lifađ í árhundruđum saman. 

En fyrst prentsmiđjur ESB eru farnar ađ dćla út lesefni fyrir íslenska bćndur má allt eins gera ráđ fyrir ađ EuropalTV fylgi í fótspor og sendi okkur verđlaunamyndina "Dagur í lífi búrókratans".

Hún ćtti ađ vera fiskimiđanna virđi.  

 
 

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Ragnhildur Kolka
Ragnhildur Kolka
Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband